
Persónuvernd í tækni- og hugverkaiðnaði
Hleður niður .ics-skrá · Tímar á Atlantic/Reykjavik · Google Calendar
Á þessum viðburði verður farið yfir hlutverk Persónuverndar, meginstoðir persónuverndarlöggjafarinnar og þær reglur sem fyrirtæki þurfa að þekkja og hafa í huga í starfsemi sinni. Þá verður fjallað um áskoranir fyrirtækja í tengslum við persónuvernd og hvernig persónuvernd getur stutt við ábyrga nýsköpun og þróun nýrra lausna.
Með hagnýtum dæmum munum við sýna hvernig fyrirtæki og frumkvöðlar geta beitt reglunum í reynd, meðal annars við framkvæmd mats á áhrifum á persónuvernd (MÁP), þegar slíkt mat er nauðsynlegt.
Gestum gefst jafnframt kostur á að bera upp spurningar og fá leiðbeiningar.
Vinnustofur verða síðan haldnar á nýju ári þar sem farið verður ítarlegar í einstaka efnisatriði og hagnýt raunhæf dæmi.
[email protected], [email protected]
Verðum í Hyl, Borgartúni 35, 105 Reykjavík
More like this near Reykjavik
Going to Persónuvernd í tækni- og hugverkaiðnaði? Ask me anything about it.
I read the organiser's pages and answer in a few seconds.
Answers are AI-generated · Privacy



